top of page
9D Breathwork Journey
Þessir tímar eru ekki bókanlegir eins og er.

Kvíði og þráhyggja - 9D Journey

Glænýtt ferðalag á íslensku

10,000 Icelandic krónur
Leiðin heim, 3.hæð, Laugavegi 178, Bolholtsmegin, Rvk.

Service Description

Þetta ferðalag er búið til fyrir þá sem eru oft að berjast við kvíða, þráhyggju og jafnvel ADHD. Markmiðið í ferðalaginu er að þátttakendur geti náð að sefa taugakerfið, hugann og öðlast frið og ró innra með sér. Þetta ferðalag er mjúkt og leiðir þig inn í hjarta þitt í stað þess að dvelja í huganum. Þú lærir aðferð til að sefa þinn huga sjálf/sjálfur hvenær sem er, þú hefur möguleika á að ganga út úr tímanum og upplifa endurnæringu á við margra tíma samfelldann svefn. Þú ert við stjórnina í þessu ferðalagi en með leiðsögn og góðri tónlist færðu tækifæri til að gefa þér ró, frið og stund til að slaka á og hvíla þig frá endurteknum hugsunum sem valda þér kvíða og jafnvel ótta. Lengd ferðlags: 1:15 Tungumál: Íslenska Tíminn allur um: 2 klst. Fyrirvari Öndunartækni eins og við notumst við í ferðalögunum er flestum holl og til góðs ef iðkuð rétt. En því miður er ekki öllum óhætt að stunda þær í öllum tilfellum og við þurfum stundum að breyta tækninni sem notuð er til að tryggja þitt öryggi. Ef eitthvað á eftirfarandi lista á við um þig, núna eða nýlega, vinsamlegast hafðu þá samband við okkur áður en þú skráir þig í tímann til að tryggja að þú upplifir þig í öryggi þegar þú kemur í tímann: - Meðganga - Kvíðaköst - Taugaáföll - Hár eða óvenjulegur blóðþrýstingur - Hjartasjúkdómar - Æðasjúkdómar - Lungnasjúkdómar


Næstu tímar


Afbókunar skilmálar

Fyrir skilmála um bókun, sjá https://www.9djourneys.com/terms

bottom of page