top of page
9D Breathwork Journey

Að vinna úr missi og sorg - 9D Journey

Glænýtt ferðalag á íslensku

10,000 Icelandic krónur
Leiðin heim, 3.hæð, Laugavegi 178, Bolholtsmegin, Rvk.

Service Description

Í þessu ferðalagi er þátttakendur leiddir í gegnum sorgarferli með samkennd og stuðningi og endað í kærleika. Fyrsti hlutinn snýst um að slaka á og róa taugakerfið, finna fyrir öryggi og frið. Síðan förum við að skoða það sem fylgir gjarnan sorginni, eins og deyfð eða dofi, reiði, ásakanir, skömm, sektarkennd, eftirsjá og iðrun. Eftir að hafa farið í gegnum þessar erfiðu tilfinningar færum við okkur yfir í að samþykkja raunveruleikann eins og hann er og sleppa tökunum. Þeir sem hafa farið í gegnum þetta ferðalag hafa upplifað eftirfarandi: Að vera sáttari við líf sitt. Að finnast fargi af þeim létt. Að finnast þeir meira tengdir sjálfum sér. Að finnast þeir meira samþykktir. Lengd ferðlags: 1:15 Tungumál: Íslenska Tíminn allur um: 2 klst. Fyrirvari Öndunartækni eins og við notumst við í ferðalögunum er flestum holl og til góðs ef iðkuð rétt. En því miður er ekki öllum óhætt að stunda þær í öllum tilfellum og við þurfum stundum að breyta tækninni sem notuð er til að tryggja þitt öryggi. Ef eitthvað á eftirfarandi lista á við um þig, núna eða nýlega, vinsamlegast hafðu þá samband við okkur áður en þú skráir þig í tímann til að tryggja að þú upplifir þig í öryggi þegar þú kemur í tímann: - Meðganga - Kvíðaköst - Taugaáföll - Hár eða óvenjulegur blóðþrýstingur - Hjartasjúkdómar - Æðasjúkdómar - Lungnasjúkdómar - Heilablóðföll - Flogaveiki eða aðrir taugasjúkdómar - Sterk lyfjameðferð - Alvarleg andleg veikindi - Beinþynning ATH: Þessi listi er ekki tæmandi og við mælum almennt með því að ef þú ert ekki viss um að 9D ferðalag henti þér, að hafa samband við okkur og fá nánari upplýsingar.


Næstu tímar


Afbókunar skilmálar

Fyrir skilmála um bókun, sjá https://www.9djourneys.com/terms

bottom of page