
HEILUNARFERÐALÖG
9D Breathwork
með Björk Ben og Jóhönnu Ósk


Heilaðu þitt innra barn
9D Breathwork á ÍSLENSKU, OM-Setrið, Hafnarbraut 6, Reykjanesbær
Service Description
Þetta ferðalag er sérstaklega ætlað til að hjálpa þér að tengjast þínu innra barni og heila það. Fyrir hvern? Þetta ferðalag fyrir þá sem vilja heila sjálfan sig og þá sérstaklega þá hluta af sér sem þeim finnst hafa verið að eiga við síðan voru börn. Þetta er mjúkt og áhrifaríkt ferðalag sem bíður upp að sjá sjálfan sig loksins sem heila manneskju sem er samkvæm sjálfum sér en ekki í bútum sem virðast hafa sjálfstætt líf. Þetta ferðalag er fyrir þá sem eru tilbúnir að horfast í augu við skugga sína og taka þann andlega þroska sem þarf til að komast frá áföllum í æsku eða öðrum neikvæðum áhrifum frá barnæskunni. Það sem fólk hefur verið að upplifa í þessu ferðalagi: Að tengjast sjálfum sér, sínu innra barni og skilja það betur og heila þann hluta af sér. Að finnast það vera meira heila manneskja sem er samkvæm sjálfum sér. Að finna meira öryggi í lífinu. Að finna meiri samkennd og ást gagnvart sjálfum sér. Lengd ferðalags: 1:20:00 Tungumál: Íslenska Fyrirvari Öndunartækni eins og við notumst við í ferðalögunum er flestum holl og til góðs ef iðkuð rétt. En því miður er ekki öllum óhætt að stunda þær í öllum tilfellum og við þurfum stundum að breyta tækninni sem notuð er til að tryggja þitt öryggi. Ef eitthvað á eftirfarandi lista á við um þig, núna eða nýlega, vinsamlegast hafðu þá samband við okkur áður en þú skráir þig í tímann til að tryggja að þú upplifir þig í öryggi þegar þú kemur í tímann: - Meðganga - Kvíðaköst - Taugaáföll - Hár eða óvenjulegur blóðþrýstingur - Hjartasjúkdómar - Æðasjúkdómar - Lungnasjúkdómar - Heilablóðföll - Flogaveiki eða aðrir taugasjúkdómar - Sterk lyfjameðferð - Alvarleg andleg veikindi - Beinþynning ATH: Þessi listi er ekki tæmandi og við mælum almennt með því að ef þú ert ekki viss um að 9D ferðalag henti þér, að hafa samband við okkur og fá nánari upplýsingar eða að þú leitir læknisráðgjafa áður en þú kemur í tímann.








Næstu tímar
Afbókunar skilmálar
Fyrir skilmála um bókun, sjá https://www.9djourneys.com/terms